Liverpool sleppur við refsingu

Virgil van Dijk var nálægt því að ganga í raðir …
Virgil van Dijk var nálægt því að ganga í raðir Liverpool. AFP

Enska knattspyrnufélagið Liverpool fær ekki refsingu fyrir að hafa rætt ólöglega við Virgil van Dijk, varnarmann Southampton. Flest benti til þess að Hollendingurinn myndi ganga í raðir Liverpool en forráðamenn Southampton voru ekki sáttir með framgöngu Liverpool í þeim efnum og kvörtuðu í ensku úrvalsdeildina. 

Svo fór að Liverpool hætti við að fá van Dijk til félagsins og bað Southampton afsökunar. Félaginu verður hins vegar ekki refsað, þar sem ekki voru nægar sannanir fyrir því að Liverpool hafi rætt við leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert