Margrét Lára: Besti leikmaðurinn í deildinni

Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport í gær, en í þættinum er farið yfir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Á meðal þess sem þau ræddu var 3:2-sigur Manchester City á Newcastle, þar sem Kevin De Bruyne fór á kostum en hann var að leika sinn fyrsta leik frá því í ágúst vegna meiðsla.

De Bruyne kom inn á sem varamaður í stöðunni 2:1 fyrir Newcastle og átti stóran þátt í að koma að taflinu City í vil.

Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert