Dramatískt mark í lokin (myndskeið)

Tyrkinn Enes Ünal tryggði Bournemouth stig á síðustu stundu er liðið mætti Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sheffield-liðið komst í 2:0 en Bournemouth neitaði að gefast upp og Ünal var réttur maður á réttum stað í uppbótartíma er hann skoraði jöfnunarmarkið.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert