Lék aðeins í hálftíma á tímabilinu

Roméo Lavia.
Roméo Lavia. Ljósmynd/Chelsea

Belgíski knattspyrnumaðurinn Roméo Lavia, miðjumaður Chelsea, leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu eftir að bakslag kom í bata hans. Hefur Lavia glímt við alvarleg meiðsli aftan í læri undanfarna mánuði.

Lavia var keyptur frá Southampton á 58 milljónir punda síðastliðið sumar. Hann meiddist fljótlega á ökkla sem hélt honum frá keppni fram í desember.

Fyrsti keppnisleikurinn fyrir Chelsea kom loks undir lok síðasta árs, þann 27.  desember. Þá lék Lavia í 32 mínútur í 2:1-sigri á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.

Belginn tvítugi meiddist aftan á læri í leiknum og verða mínúturnar sem hann fékk í honum einu mínútur Lavia á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert