Stjarna United á síðasta séns?

Marcus Rashford.
Marcus Rashford. AFP/Darren Staples

Knattspyrnumaðurinn Marcus Rashford þarf að berjast fyrir sæti sínu í landsliðshópi Englands fyrir Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar. 

Frá þessu greina miðlar þarlendis í morgunsárið. Rashford hefur hingað til verið fastamaður í enska landsliðinu. 

Tímabil hans með Manchester United hefur þó ekki verið upp á marga fiska. Þá er hann einnig búinn að lenda í vandræðum utanvallar. 

Er ástæðan fyrir því sennilega einnig hversu hörð samkeppnin er um stöður í enska landsliðinu. Verður United-maðurinn því að eiga góðan lokakafla til að tryggja sitt sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert