Pic í óvissu

Charles Pic hjá Caterham.
Charles Pic hjá Caterham. mbl.is/afp

Franski ökumaðurinn Charles Pic sagðist á blaðamannafundi í Interlagosbrautinni í Sao Paulo í dag efast að einhverju leyti um að hann fengi áframhaldandi starf í formúlu-1.

Pic, sem er 23 ára,  segir langt frá því frágengið að hann fái framlengingu á starfssamningi hjá Caterhamliðinu. Hann segir þar mestu ráða tilraunir Heikki Kovalainen til að fá að nýju starf hjá liðinu. 

Caterham skipti um báða ökumenn í lok síðustu vertíðar og réðist Pic þá þangað eftir eitt ár í skiprúmi hjá Marussia þar sem hann vakti athygli. Liðin tvö eiga í harðri baráttu um 10. sætið í keppni bílsmiða og hefur það síðarnefnda nú undirtökin vegna þrettánda sætis Jules Bianchi í Malasíukappakstrinum.

Charles Pic á Caterhambílnum í kóreska kappakstrinum í haust.
Charles Pic á Caterhambílnum í kóreska kappakstrinum í haust. mbl.is/afp
Charles Pic á Caterhmabílnum í bandaríska kappakstrinum í Austin í …
Charles Pic á Caterhmabílnum í bandaríska kappakstrinum í Austin í Texas. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert