Mega aka fyrir fullu afli

Vélvirkjar Red Bull vinna í bíl Daniel Ricciardo í Melbourne.
Vélvirkjar Red Bull vinna í bíl Daniel Ricciardo í Melbourne. mbl.is/afp

Liðum sem brúka Renaultvélar hefur verið tjáð að þau megi knýja þær til hins ýtrasta í  Melbourne um helgina.

Franski vélsmiðurinn leyfði ekki botnkeyrslu við bílprófanir í vetur til að komast hjá frekari bilunum en vandamál tengd vélinni og kælingu hennar hrjáðu liðin við reynsluaksturinn.

Nú segir yfirmaður Renault á formúlumótum, Remi Taffin, að öllum takmörkunum hafi verið aflétt. Því geti ökumenn Red Bull, Lotus, Toro Rosso og Caterham botnkeyrt um brautina.

„Við vorum á eftir áætlun með suma hluta drifrásarinnar sem neyddi okkur til að keyra þær á takmörkuðu afli. En ég held við höfum unnið okkur út úr því öllu og munum komast að því hér hvernig vélarnar reynast þegar hámarksafli er beitt,“ sagði Taffin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert