Hjartnæm kveðja Schumachers

Michael Schumacher er 55 ára.
Michael Schumacher er 55 ára. AFP

Michael Schumacher, einn þekktasti akstursíþróttamaður allra tíma, átti 55 ára afmæli í gær. Sonur hans Mick Schumacher skrifaði hjartnæma kveðju á Instagram við tilefnið.

Birti hann mynd af þeim feðgum saman þegar Mick var ungur drengur og textann „Til hamingju með afmælið, besti pabbi í heimi. Ég elska þig.“

Schumacher eldri hefur ekki sést opinberlega í meira en áratug, eða frá því hann slasaðist alvarlega í skíðaslysi.

Er lítið vitað um ástand Þjóðverjans, en hann er í umsjá fjölskyldu sinnar og heilbrigðisstarfsfólks í Sviss. Er talið að hann geti hvorki tjáð sig né gengið.

Kveðjan frá Schumacher yngri.
Kveðjan frá Schumacher yngri. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert