Íslensk félög frá 43 milljónir frá UEFA

Frá N1 mótinu á Akureyri í sumar.
Frá N1 mótinu á Akureyri í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2013/2014 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga. 

Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2014 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 43 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. 

Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild.  Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.

Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 39 milljónir króna til viðbótar sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda en skipting á framlagi til barna – og unglingastarfs verður þá með þeim hætti að félög úr Pepsi-deild fá kr. 3.575.000 sem er framlag UEFA, félög úr 1. deild fá kr. 1.600.000 , félög í 2. deild karla fá kr. 1.100.000 hvert, önnur félög í deildarkeppni kr. 800.000 og félög utan deildarkeppni kr. 250.000.  Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum og skulu félög utan deildarkeppni og félög sem ekki halda úti starfsemi hjá báðum kynjum sækja sérstaklega um framlag. 

Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna.

 Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna.  Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2014 áætlað um 82 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert