Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hefur ekki náð að hrista af sér nárameiðslin og verður því ekki með Augsburg þegar það sækir Freiburg heim í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.
Alfreð, sem hefur skorað þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni HM, fór meiddur af velli í sigurleiknum á móti Tyrkjum fyrir hálfum mánuði og hefur verið í meðferð síðan þá. Hann æfði aðeins í vikunni með Augsburg en er ekki alveg orðinn nógu góður til að spila.