Markvörðurinn Birna Kristjánsdóttir og lið hennar Grand Bodø tryggðu sér í gær sæti í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð.
Grand Bodø er taplaust á toppi B-deildarinnar í Noregi eftir 20 leiki, en enn eru tvær umferðir eftir. Liðið vann 5:0-útisigur á Fortuna Ålesund, en lið Birnu hefur skorað 70 mörk í deildinni og Birna hefur aðeins þurft að hirða boltann ellefu sinnum úr neti sínu.
Liðið er með 54 stig á toppnum eftir að hafa unnið sautján leiki og gert þrjú jafntefli. Birna spilaði með Breiðabliki og Val hér á landi áður en hún gekk í raðir Grand Bodø.