Gunnhildur skoraði í frábærum sigri

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði fyrir Vålerenga
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði fyrir Vålerenga Ljósmynd/Heimasíða Vålerenga

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn fyrir Vålerenga og skoraði þriðja mark liðsins í 3:2-útisigri á Arna-Bjørnar í norsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. Arna-Bjørnar komst í 2:0 eftir aðeins fjórar mínútur en Vålerenga snéri taflinu við og Elise Krieghoff skoraði sigurmarkið í blálokin eftir að Gunnhildur hafði jafnað leikinn eftir rúmlega klukkutíma leik. 

Vålerenga er í sjöunda sæti af tólf liðum með 20 stig eftir 13 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert