Fanndís lék sinn fyrsta leik fyrir Marseille

Fanndís Friðriksdóttir með treyju Marseille.
Fanndís Friðriksdóttir með treyju Marseille. Ljósmynd/Instagram

Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir lék sinn fyrsta leik í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag með Marseille sem sótti Paris FC heim. Lokatölur urðu 2:1 sigur heimakvenna í París.

Fanndís samdi við Marseille á dögunum og lék allan leikinn í byrjunarliði liðsins í dag.

Marsille komst yfir á 13. mínútu með marki frá Marie-Yasmine Alidou D'Anjou, en heimakonur í París jöfnuðu metin á 27. mínútu en það var Graetane Thiney sem skoraði markið. Hún lagði svo upp sigurmarkið á 49. mínútu sem Ines Jaurena skoraði.

Marseille er í 7. sæti deildarinnar með 1 stig eftir tvo leiki en Montpellier, Lyon og París eru efst með fullt hús stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert