Grýttu vitlausa rútu

Gærkvöldið var erfitt fyrir Barcelona.
Gærkvöldið var erfitt fyrir Barcelona. AFP/Josep Lago

Einhverjir stuðningsmenn spænska knattspyrnufélagsins Barcelona grýttu bjórglösum í liðsrútu fyrir leik liðsins við París SG á heimavelli í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Því miður fyrir stuðningsmennina og liðsmenn Barcelona köstuðu þeir glösunum í liðsrútu Barcelona-liðsins fyrir slysni en þeir héldu að um liðsrútu Parísarfélagsins var að ræða.

Vont varð síðan verra fyrir stuðningsmennina, því PSG vann leikinn 4:1 og tryggði sér sæti í undanúrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert