Arnar og Hafdís keppa á EM í Tékklandi

Arnar Davíð Jónsson úr KFR og Hafdís Pála Jónasdóttir úr …
Arnar Davíð Jónsson úr KFR og Hafdís Pála Jónasdóttir úr KFR. Ljósmynd/Keilusamband Íslands

Í dag heldur hópur frá Keilusambandi Íslands til Olomouc í Tékklandi þar sem Evrópumót landsmeistara fer fram. Á mótinu keppa 40 karlar og 36 konur frá 39 löndum. Þær þjóðir sem áttu sigurvegara síðasta árs fá að senda tvo keppendur.

Fyrir Íslands hönd keppa þar Íslandsmeistarar 2016, þau Hafdís Pála Jónasdóttir úr KFR og Arnar Davíð Jónsson úr KFR. Þjálfari þeirra er Ásgrímur H. Einarsson.

Keppni hefst á miðvikudag og stendur fram á sunnudag. Heimasíðu mótsins má nálgast HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert