Dýrmætur útisigur hjá KA

KA lagði Aftureldingu í dag.
KA lagði Aftureldingu í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

KA jafnaði í dag metin gegn Aftureldingu í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki þegar liðin mættust í Mosfellsbæ.

Afturelding vann fyrsta leikinn á Akureyri, 3:0, og hefði því komið sér í góða stöðu með heimasigri í dag.

KA-konur voru á öðru máli en eftir að Afturelding vann fyrstu hrinuna, 25:23, jafnaði KA metin með samskonar sigri, 25:23. Akureyringar sigldu síðan fram úr í þriðju hrinu, unnu hana 25:16, og svo þá fjórðu, 25:22.

Þar með urðu lokatölur 3:1, KA í vil, og liðin eigast við í þriðja sinn á Akureyri á miðvikudaginn en fjórði leikurinn verður í Mosfellsbæ næsta laugardag. Ef til oddaleiks kemur fer hann fram á Akureyri 7. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert