Mikið verk fyrir höndum hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/GSÍ.

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hóf leik á sínu fyrsta móti á LET-Evrópumótaröðinni í dag, sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Leikið var á Royal Dar Es Salam-vellinum í Marokkó.

Ólafía lék á átta höggum yfir pari á sínum fyrsta hring í dag. Hún fékk tvo tvöfalda skolla, fjóra skolla og 12 pör.

Ljós er að Ólafía á mikið verk fyrir höndum ætli hún sér að koma sér í gegnum niðurskurðinn sem verður eftir 36 holur en áætlaður niðurskurður er eins og staðan er í dag fjögur högg yfir par.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert