Þröstur missir af fyrsta leiknum á móti FH

Þröstur Þráinsson reynir hér að stöðva Framaran Stefán Darra Þórsson.
Þröstur Þráinsson reynir hér að stöðva Framaran Stefán Darra Þórsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þröstur Þráinsson, hornamaður í liði deildarmeistara Hauka, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ.

Þröstur fékk útilokun með skýrslu vegna brots á lokamínútunni í leik Hauka og Akureyrar á mánudaginn. Þröstur verður því ekki með Haukunum í fyrsta leiknum á móti FH í undanúrslitum Olís-deildarinnar sem fram fer að Ásvöllum á þriðjudaginn í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert