Öruggt hjá Berlínarrefunum

Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlín.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlín. mbl.is

Füchse Berlín, liðið sem Dagur Sigurðsson þjálfar og stýrði til sigur í bikarkeppninni um síðustu helgi, vann Gummersbach, 27:22, á heimavelli í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Berlínarrefirnir voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Þeir eru sem fyrr í fimmta sæti deildarinnar, nú með 40 stig þegar fimm umferðir eru eftir, og níu stigum á eftir toppliðunum Rhein-Neckar Löwen og Kiel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert