Öruggt hjá Erlingi og lærisveinum

Erlingur Richardsson segir mönnum sínum í West Wien til.
Erlingur Richardsson segir mönnum sínum í West Wien til. Ljósmynd/heimasíða West Wien

West Wien, liðið sem Erlingur Richardsson þjálfar í austurrísku 1. deildinni í handknattleik, vann í gærkvöldi  neðsta lið deildarinnar, SU Falkensteiner Katschberg - St.Pölten, 36:26, örugglega  á útivelli. Lærisveinar Erlings voru níu mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:9.

West Wien er í þriðja sæti deildarinnar um þessar mundir með 28 stig eftir 18 leiki. Alpla HC Hard er í efsta sætinu með 29 stig. HC Fivers er í öðru sæti með 28 stig en stendur betur að vígi gagnvart West  Wien á innbyrðisleikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert