Ótrúlega lélegt

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, var að vonum vonsvikinn eftir tap, 23:21, fyrir ÍBV í undanúrslitum Coca Cola bikarsins í handknattleik karla í Laugardalshöll í kvöld. „Síðasti stuundarfjórðungurinn var ótrúlega lélegur hjá okkur eftir góðar 40- 45 mínútur, " sagði Patrekur í samtali við mbl.is í kvöld.

„Ég hef ekki enn sérstaka skýringu á þessu því framan af lékum við vel og leikaðferðir okkar gengu upp. Við náðum að halda Eyjamönnum niðri en síðan gerðist eitthvað sem ég hef ekki skýringu á nema að þetta var ótrúlega lélegt."

Nánar er rætt við Patrek á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert