Einn nýliði í hópnum sem fer til Sviss

Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta
Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta Ernir Eyjólfsson

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið 16 manna leikmannahóp sem tekur þátt í æfingum og leikjum dagana 16.-22.mars næstkomandi.

Verkefnið er liður í undirbúningi íslenska liðsins sem bíður erfitt verkefni fyrir undankeppni HM en mótherjar Íslands eru Svartfellingar, ein sterkasta kvennahandknattleiksþjóð heims.

Einn nýliði er í hópnum en það er Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður Gróttu.

Liðið mun dvelja í Sviss, æfa þar og leika tvo vináttuleiki gegn landsliði Sviss. Leikirnir fara fram fimmtudaginn 19. mars kl. 18.00 í Visp og laugardaginn 21. mars kl. 18.00 í Zofingen. Leiktímarnir miðast við staðartíma.

Leikmannahópur Íslands:

Markmenn:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Grótta, nýliði
Guðrún Ósk Maríasdóttir, FH
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir

Útileikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan
Hildigunnur Einarsdóttir, BK Heid
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss
Karen Knútsdóttir, Nice
Ramune Pekarskyte, LE Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Skrim
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
Þórey Ásgeirsdóttir, Kongsvinger

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert