Stórleikur hjá Bjarka

Bjarki Már Elísson skoraði 11 mörk.
Bjarki Már Elísson skoraði 11 mörk. Ljósmynd/thsv-eisenach.de

Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson átti í kvöld enn einn stórleikinn fyrir Eisenach í þýsku 2. deildinni í handbolta. 

Bjarki skoraði 11 mörk þegar Eisenach vann Bittenfeld á útivelli 26:25. Bjarki átti stoðsendinguna í síðasta marki leiksins á lokamínútunni. 

Eisenach er í 2. sæti deildarinnar en Bittenfeld í 3. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert