Stjarnan ekki í vandræðum með Fylki

Rakel Dögg Bragadóttir átti góðan leik.
Rakel Dögg Bragadóttir átti góðan leik. mbl.is/Árni Sæberg

Stjarnan átti ekki í miklum vandræðum með botnlið Fylkis í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Lokatölur voru 38:25, Stjörnunni í vil. 

Staðan í hálfleik var 20:14 og reyndist Stjarnan of sterk fyrir Fylkiskonur. Stjarnan er því enn tveim stigum á eftir toppliði Fram, en Fylkir er tveim stigum á eftir Selfossi, sem er í næstneðsta sæti. 

Rakel Dögg Bragadóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna, eins og Christine Rishaug fyrir Fylki. 

Markaskorarar Stjörnunnar: Rakel Dögg Bragadóttir 8, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6, Helena Rut Örvarsdóttir 5, Brynhildur Kjartansdóttir 5, Elena Elísabet Birgisdóttir 4, Aðalheiður Hreinsdóttir 3, Solveig Lára Kjærnested 3, Stefanía Theodórsdóttir 3, Aníta Theodórsdóttir 1

Markaskorarar Fylkis: Christine Rishaug 8, Thea Imani Sturludóttir 7, Diljá Mjöll Aronsdóttir 3, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Hrafnhildur Irma Jónsdóttir 2, Vera Pálsdóttir 1, Þuríður Guðjónsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert