Canellas rifjar upp ummæli hjá Lineker

Joan Canellas.
Joan Canellas. AFP

Joan Canellas, sem tryggði Spánverjum sæti í undanúrslitunum á HM í handknattleik, rifjaði upp gömul ummæli Gary Lineker fyrrum landsliðsmanns Englendinga í knattspyrnu þegar hann var spurður út í Frakka, andstæðinga Spánverja í undanúrslitunum á HM í Katar í kvöld.

„Þeir vita hvernig á að gera þetta á þessu stigi með reynslu sinni og sjálfstrausti. Eins og Gary Lineker sagði einu sinni; „Svona eru Frakkar eins og Þjóðverjarnir í fótboltanum. Við getum vel sagt að handboltinn er leikur, þar sem 14 leikmenn elta boltann í 60 mínútur og að lokum eru það alltaf Frakkar sem vinna,“ segir Canallas sem skoraði sigurmarkið gegn Dönum í átta liða úrslitunum í fyrrakvöld þegar tvær sekúndur voru til leiksloka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert