Ánægðir með Aldridge

LaMarcus Aldridge.
LaMarcus Aldridge. AFP

LaMarcus Aldridge var vel fagnað af stuðningsmönnum Portland Trail Blazers í nótt. Hann tilkynnti í gær að hann hefði hætt við aðgerð á hendi, sem hefði kostað 6-8 vikna fjarveru, og hygðist spila áfram þrátt fyrir verki.

Stuðningsmennirnir hylltu Aldridge við öll tækifæri í leiknum og hann svaraði fyrir sig með því að skora 26 stig og taka 9 fráköst í sigri á Washington Wizards í hörkuleik, 101:96. Portland styrkti með því stöðu sína í þriðja sæti Vesturdeildar en Washington er áfram í öðru sæti Austurdeildar þrátt fyrir tvo tapleiki í röð. John Wall skoraði 25 stig fyrir Washington og átti 9 stoðsendingar.

Úrslitin í nótt:

Charlotte - New York 76:71
Milwaukee - Detroit 101:86
Memphis - Philadelphia 101:83
Utah - Brooklyn 108:73
Portland - Washington 103:96

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert