Norðurþing vill kaupa heimildir Vísis

Vísir hf. ætlar að flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grindavíkur. …
Vísir hf. ætlar að flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grindavíkur. Vinnslur félagsins á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík verða lagðar niður. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Í ljósi þess, að eigendur og hluthafar Vísis hf. hafa tekið ákvörðun um að flytja starfsemi fyrirtækisins á Húsavík til Grindavíkur ásamt öllum tækjum, starfsmönnum og aflaheimildum, óskar sveitarfélagið Norðurþing eftir formlegum viðræðum við eigendur fyrirtækisins um kaup á eignum og aflaheimildum þess sem tilheyra Húsavík. Þetta var bókað á fundi bæjarráðs í dag.

Ástæða beiðninnar byggir á samkomulagi sem sveitarfélagið gerði við eigendur og hluthafa Vísis hf., þegar það keypti hlut sveitarfélagsins í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur á sínum tíma, en þar kom fram að efla ætti og byggja upp starfsemina á Húsavík. „Nú liggur fyrir að þær forsendur eru brostnar og því eðlilegt að sveitarfélagið fái tækifæri til endurkaupa á eignum og aflaheimildum þannig að tryggja megi að markmið samkomulagsins nái fram að ganga,“ segir í bókun ráðsins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita bréf til eigenda Vísis hf., þar sem óskað er eftir formlegum viðræðum um endurkaup á eignum og aflaheimildum Vísis hf. á Húsavík.  

Frétt mbl.is: Öll starfsemi Vísis til Grindavíkur

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK