Árni Oddur viðskiptamaður ársins

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels. mbl.is/Árni Sæberg

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, er maður ársins í atvinnulífinu á Íslandi árið 2015, að mati Frjálsrar verslunar.

Kaup Marels á hollenska fyrirtækinu MPS í nóvember sl. eru talin hafa verið mjög vel útfærð auk þess sem talið er að endurskipulagning Marels undir stjórn Árna hafi reynst mjög árangursrík.

Í mati dómnefndar kemur fram að Árni hljóti þennan heiður fyrir stórhug, áræði, útsjónarsemi, framúrskarandi hæfileika í stjórnun og framsæknar fjárfestingar sem gert hafa Marel að eftirsóknarverðum kosti á hlutabréfamarkaði og fært það í fremstu röð fyrirtækja í heiminum á sínu sviði.

„Undir stjórn Árna hefur reksturinn verið einfaldaður, verksmiðjum fækkað, markaðssókn gerð markvissari, vöruframboð einfaldað og framleiðsla félagsins gerð skilvirkari,“ segir í tilkynningu frá Frjálsri verslun.

Gífurleg veltuaukning

Marel hefur um árabil verið eitt af stærstu og vinsælustu fyrirtækjum landsins. Velta þess á síðasta ári var um 111 milljarðar króna, hagnaður um 2,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall um 50%.

Fyrirtækið rekur eigin starfsstöðvar í 32 löndum og starfsmenn eru um 4.700 talsins. Tekjur félagsins eftir kaupin á MPS eru áætlaðar einn milljarður evra, eða um 141 milljarður króna.

Árni settist í stjórn Marels árið 2005 og síðar sama ár varð hann stjórnarformaður. Hann varð forstjóri Marels í byrjun nóvember árið 2013. Þess má geta að árið 2005, þegar Árni settist í stjórnina, var velta Marels um 130 milljónir evra, rúmir 18 milljarðar króna.

Ætlar í fæðingarorlof í byrjun næsta árs

Eiginkona Árna er Eyrún Lind Magnúsdóttir og eiga þau tvö börn, Elínu Maríu og Þórð. Fjölgunar er að vænta í fjölskyldunni innan skamms, þar sem þau Árni og Eyrún Lind eiga von á stúlkubarni í byrjun janúar.

Í umfangsmiklu viðtali við Árna Odd í áramótablaði Frjálsrar verslunar kemur fram að hann hyggst taka sér barneignafrí eftir áramótin og fara í fæðingarorlof.

Verðlaunin verða afhent formlega í dag, 29. desember, kl. 16:00 á Radisson Hótel Sögu, í veislu sem Frjáls verslun heldur Árna til heiðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK