Helga hættir sem formaður bankaráðs

Helga Björk Eiríksdóttir.
Helga Björk Eiríksdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, sem hefur setið í bankaráði frá árinu 2013 og verið formaður þess frá árinu 2016, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu í ráðinu á aðalfundi bankans 20. mars.

Þá mun Berglind Svavarsdóttir, varaformaður bankaráðs, sem setið hefur í bankaráði frá árinu 2016, heldur ekki gefa kost á sér og lætur af störfum í bankaráði á sama tíma, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

Berglind Svavarsdóttir.
Berglind Svavarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

„Ég hef setið í stjórn Landsbankans í 11 ár. Þar hef ég fengið tækifæri til að starfa með frábæru fólki og taka þátt í mörgum krefjandi, mikilvægum og skemmtilegum verkefnum, s.s. umbreytingum á fjárhagsskipan bankans, umbótum á stjórnarháttum, framþróun í upplýsingatækni og stafrænni þjónustu og síðast en ekki síst móta stefnuna fyrir Landsbanka nýrra tíma. Landsbankinn hefur dafnað afar vel á síðustu árum. Hann er stærstur viðskiptabankanna, reksturinn er traustur og fjárhagslegur styrkur bankans mikill,” segir Helga Björk í tilkynningunni.

„Landsbankinn nýtur samkvæmt mælingum mests traust bankanna, er með hæstu markaðshlutdeildina og hefur mælst efstur í Íslensku ánægjuvoginni hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu síðustu fimm árin. Þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður var árið 2023 afar farsælt og þegar á allt er litið er óhætt að segja að síðasta ár hafi verið það besta í sögu bankans. Hagnaðurinn var 33,2 milljarðar króna og arðsemin 11,6% sem er yfir markmiði bankans. Flutningar í nýtt húsnæði gengu afar vel, fjölmargir viðskiptavinir bættust í hópinn og bankinn bauð upp á margar nýjar og vel heppnaðar lausnir til að mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina,” segir hún jafnframt.

„Ég er afar þakklát fyrir góðan tíma hjá Landsbankanum og þakka öllum bankaráðsmönnum, bankastjóra, öðrum stjórnendum og öllu því frábæra starfsfólki sem ég hef kynnst og starfað með undanfarin ár, kærlega fyrir samstarfið. Starfsfólk bankans er metnaðarfullt og hefur ávallt fagmennsku að leiðarljósi í störfum sínum. Þá vil ég þakka hluthöfum fyrir traustið og afar góð samskipti á liðnum árum. Ég kveð Landsbankann með hlýhug og stolti og veit að hans bíður farsæl framtíð.”

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK