Karen Axelsdóttir - haus
30. mars 2010

Stuðningur frá Íslandi

karenIMÉg hef fengið svo mörg og ótrúlega fallega skilaboð frá ykkur lesendum að maður næstum klökknar að hugsa til þess hvað margir voru með mér í huganum. Ekki bara frá fjölskyldu, vinum og íþóttanördum heldur frá fullt af ókunnu fólki, húsmæðrum, unglingum og venjulegu fólki sem er ekkert í íþróttum. Ég ætla að leyfa mér að vera væmin og segja ykkur að þetta hefur verið ómetanlegt og ég skil ekki hvernig ég get verið svona heppin að eiga svona marga góða að. Ég hef fengið ótal spurningar sem ég hef ekki náð að svara en þakka hér með fyrir þær og mun reyna að taka þær flestar fyrir síðar.

 

Hvað niðurstöður varðar þá virðast þær bara batna með hverjum deginum, en mótshaldarar hafa óvart flokkað marga sem hættu keppni efst þannig ég var að fá skilaboð um á ég er í 21 fyrsta sæti að atvinnmönnum meðtöldum og 6  sæti í mínum flokki. Ekki að það skipti megin máli en ég á bágt með að trúa því miðað allan þennan fjölda sérstaklega  hvað mér leið vel en ég held ég hafi sigrað hvað varðar vellíðan meðan á keppni stóð :-)