Karen Axelsdóttir - haus
Þú ert hér: Karen Axels > Jafna mig
31. mars 2010

Jafna mig

tryggvinudd.jpg

Venjulega fæ ég lítinn tíma til að jafna mig milli keppna á keppnistímabilinu yfir sumarið. Tek því kanski rólega í 1-2 daga og fer í ísbað ef ég hef tíma. Þannig það er heldur betur dekur að vera hér í fríi í Ástralíu og með foreldrana til að dekra við mig og soninn að nudda mig. Þessar mömmur eru ótrúlegar. Merkilegt að maður skuli ekki kunna að meta þjónustuna almennilega fyrr en maður flytur að heiman.

Ég hef næstum áhyggjur af því hvað ég er hress en flestir Ironman í liðinu mínu eru hálfónýtir eftir á, stundum í nokkrar vikur. Spurningin er var ég alltof varkár eða 100% tilbúin eða bæði? Það eru smá harðsperrur í hlaupavöðvum þar sem þeir hafa fengið góða hvíld frá löngum hlaupum en að öðru leyti finn ég ekki fyrir þessu.

Við vorum að keyra meðfram ströndinni til Port Douglas og ég var á bílferðinni strax í huganum farin að spá í hjólaleiðir og farin að rifja upp hvað ég gerði við blautbúninginn. Eiginmaðurinn greinilega las á mér svipinn og sagði með glotti ,,nú er ekki pása frá æfingum þessa vikuna?". Mér leið eins og gómuðum innbrotsþjóf og fannst þetta frekar fyndið. Þannig spurning hvort maður reyni að slökkva aðeins í rakettunni næstu daga.