Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Viðskipti
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur farið þess á leit við íslensk stjórnvöld að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag til að tryggja að tekjuskattur sé greiddur af starfseminni.
meira
Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum hefur ráðið Ólöfu Helgu Jónsdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra mannauðs og menningar. Um er að ræða nýtt stöðugildi í fyrirtækinu þar sem um 220 manns starfa, að því er segir í tilkynningu.
meira
Sparnaður heimila er að vaxa miklu meira en áður var talið og hægt hefur töluvert á vexti einkaneyslu.
meira
Háar eiginfjárkröfur bankanna eru meðal þess sem gerir íbúðalán dýrari á Íslandi en erlendis.
meira
Klappir grænar lausnir hyggjast á næstunni auka hlutafé eða taka lán.
meira
Verulega hefur hægt á hagvexti á Íslandi frá því í byrjun síðasta árs þegar hann mældist 8% og hafa hagvaxtarhorfurnar fyrir þetta ár og það næsta versnað. Einkaneysla og útflutningur hafa dregist saman og er útlit fyrir að sparnaður heimila sé að vaxa meira en áður var talið.
meira
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gerir ekki ráð fyrir því að samhljómurinn sem settur var í kjarasamningum í vor verði rofinn í þeim kjaradeilum sem nú standa yfir við opinbera starfsmenn.
meira
Vörumerkjastofan Brandr hélt á dögunum níundu Charge Awards-vörumerkjaráðstefnu sína í Lissabon í Portúgal undir yfirskriftinni CHARGE - Powering Energy Brands.
meira
Þetta eru gríðarlega jákvæðar fréttir og núna er stýrilækkunarferlið hafið af fullum krafti eins og okkar spálíkan sem við vorum að vinna með samhliða kjarasamningum gerði ráð fyrir.
meira
Kynningarfundur vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands hefst í Safnahúsinu við Hverfisgötu klukkan 9.30 í dag.
meira
Breytingar verða á vöxtum inn- og útlána Íslandsbanka 2.desember næstkomandi. Taka þeir að mestu mið af lækkun stýrivaxta Seðlabankans núna í morgun.
meira
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig.
meira
Tölvuleikjafyrirtækið CCP fær hæstu upphæðina í ár í sérstakan skattafrádrátt vegna nýsköpunar, eða samtals tæplega 449 milljónir í gegnum félögin CCP ehf. og CCP Platform ehf. Fékk fyrra félagið 275 milljónir og hið síðara 174 milljónir.
meira
Samkeppniseftirlitið hefur ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf þar sem vakin er athygli á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að afgreiðsla Alþingis á búvörulögum hafi verið í andstöðu við stjórnarskrá.
meira
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að samtökin séu hæstánægð með niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur um að ný búvörulög sem voru samþykkt á Alþingi í mars, þar sem kjötafurðastöðvum var meðal annars veitt undanþága frá samkeppnislögum, hafi verið í andstöðu við stjórnarskrá Íslands.
meira
Meðalverð á þorski og ýsu sem selst á fiskmörkuðum landsins hefur aukist með áberandi hætti frá upphafi fiskveiðiársins 24/25. Mest hefur verð á slægðri ýsu aukist en hækkunin nemur tæplega 43%.
meira
Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki nokkuð hratt allra næstu mánuði og í nýlegri verðbólguspá gerir bankinn ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar, sem er talsverð hjöðnun frá núverandi gildum.
meira
Fasteignasali með áratuga reynslu af sölu fasteigna í Reykjavík segir skort á bílastæðum á þéttingarreitum í borginni fæla frá hugsanlega kaupendur. Meirihluti borgarbúa sé ekki tilbúinn að taka upp bíllausan lífsstíl.
meira
Stein Ove Tveiten fráfarandi forstjóri Arctic Fish segir Ísland hafa burði til að þróa sjókvíaeldi á sjálfbæran hátt, en kveðst óttast að hugmyndir um að sniða greininni þrengri stakk á sama tíma og hún á Íslandi sætir þyngri skattbyrði en eldi í öðrum ríkjum mun hamla vaxtatækifærum.
meira
Skilgreina þarf hugtakið kolefniseining í lögum og ekki ætti að vera heimilt að flytja út alþjóðlegar kolefniseiningar (ITMOs) frá Íslandi sem hefðu neikvæð áhrif á losunarbókhald Íslands fyrr en skuldbindingar um samdrátt í losun hafa verið uppfylltar.
meira
til baka
fleiri