Kynna 400 nýjar stúdentaíbúðir

Gamli garður við Háskóla Íslands.
Gamli garður við Háskóla Íslands.

Verulega mun draga úr húsnæðisvanda háskólafólks á næstunni, þar sem fram til ársins 2019 verða yfir 400 stúdentaíbúðir og -herbergi reist fyrir nemendur við Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagsstofnun stúdenta.

Um er að ræða umfangsmestu framkvæmdir í sögu Félagsstofnunar stúdenta og nemur framkvæmdakostnaðurinn alls 6,3 milljörðum króna. Lánar Íbúðalánasjóður ríflega 5,6 milljarða til framkvæmdanna.

Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, og Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, skrifuðu nú síðdegis undir fjármögnunina að viðstöddum ráðherra húsnæðismála, Eygló Harðardóttur, og Hermanni Jónassyni, forstjóra Íbúðalánasjóðs.

Frá undirskriftinni síðdegis í dag.
Frá undirskriftinni síðdegis í dag.

Fimm hæða hús reist við Sæmundargötu

Fram kemur að íbúðirnar verði í nýjum byggingum við Gamla garð, Sæmundargötu og Brautarholt, en í Brautarholti 7 eru 102 íbúðir í lokafrágangi og verða þær afhentar nýjum íbúum 1. nóvember.

Flestar verða íbúðirnar við Sæmundargötu 23 á háskólasvæði Háskóla Íslands.

Verður þar reist fimm hæða hús með 220-230 stúdentaíbúðum og -herbergjum með sérbaðherbergi en sameiginlegu eldhúsi og stofu en að auki verður bílakjallari undir húsinu.

Framkvæmdin verður boðin út um næstu mánaðamót og stefnt að því að hún hefjist í mars 2017, fyrri áfangi verði tilbúinn um áramótin 2018-2019 og seinni áfangi í júlí 2019.

„Þurfum enn meira húsnæði“

Haft er eftir Eygló Harðardóttur ráðherra í tilkynningu að hún óski stúdentum og Félagsstofnun stúdenta hjartanlega til hamingju með áformin, sem séu stórhuga.

„Á bak við þær býr mikill frumkvöðlaandi sem ég dáist að. Stúdentar eru í fararbroddi í að byggja hagkvæmt húsnæði, smærri íbúðir og herbergi sem nýta sameiginlega aðstöðu. Húsnæðið sem um ræðir og byrjað verður að afhenda í næsta mánuði og fram til ársins 2019 svarar brýnustu húsnæðisþörf ungs fólks.

Ég þykist vita að þetta verður ekki síðasta verkefnið sem Íbúðalánasjóður kemur að með Félagsstofnun stúdenta. Við þurfum að fá enn meira húsnæði fyrir þennan hóp. Sömuleiðis vona ég að fjármögnun sambærilegra áforma annarra stúdentafélaga fari að komast í höfn og þá sjáum við fram á allt aðra og betri tíma í húsnæðismálum þessa mikilvæga hóps.“

Ráðherra ásamt framkvæmdastjóra FS, framkvæmdastjóra og forstjóra ÍLS, og fulltrúum …
Ráðherra ásamt framkvæmdastjóra FS, framkvæmdastjóra og forstjóra ÍLS, og fulltrúum Stúdentaráðs HÍ.

Aldrei jafnmargir á biðlista

Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FS, segir þá í tilkynningunni að stundin sé stór fyrir stofnunina.

„Þetta er stór stund fyrir okkur. Við erum með um 1.100 einingar til leigu og munum nú geta bætt við rúmlega 400 til viðbótar. Við ætlum að byggja og afhenda þær hratt og örugglega og þessi öfluga fjármögnun frá Íbúðalánasjóði skiptir þar lykilmáli.

Þeir vita það sem fylgst hafa með húsnæðismálum stúdenta að það hefur aldrei verið jafnmikil eftirspurn eftir stúdentaíbúðum. Nú í haust gátum við aðeins úthlutað rúmlega 200 nýjum íbúum húsnæði hjá okkur þar sem tæplega 900 íbúar garðanna nýttu sér rétt sinn til að endurnýja leigusamninga.

Það hafa aldrei verið jafnmargir á biðlista eftir stúdentaíbúð en nú ætlum við að breyta því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert