Þessu pakka tískudrottningar fyrir ferð til Parísar

Frönsk tíska hefur heillað marga upp úr skónum í gegnum …
Frönsk tíska hefur heillað marga upp úr skónum í gegnum árin. Samsett mynd

Parísarborg er þekkt fyrir að vera mikil tískuborg, enda hafa mörg af frægustu tískuhúsum heims sprottið upp þar. Einfaldleiki og fágað yfirbragð einkennir franska tísku sem heillar marga.

Á dögunum birtist viðtal við frönsku tískugyðjuna Jeanne Damas á ferðavef Condé Nast Traveller þar sem hún gaf lesendum góð ráð þegar kemur að tískunni í Parísarborg. Hún birti lista yfir átta flíkur sem eru ómissandi í París og eiga því heima í ferðatösku tískudrottninga sem hyggjast heimsækja borgina.  

1. Einfaldur blazer-jakki

Ef það er eitthvað sem setur punktinn yfir i-ið á dressinu þá er það góður blazer-jakki. Það eru mikil notagildi í slíkum jakka, en hann passar bæði við gallabuxur og einfaldan topp en líka við fína kjóla og er því ómissandi í ferðatöskuna.

Damas mælir með því að jakkinn sé ekki of aðsniðinn …
Damas mælir með því að jakkinn sé ekki of aðsniðinn en þó ekki of víður heldur. Skjáskot/Instagram

2. Klassískar gallabuxur

Franskar konur eru sérfræðingar þegar kemur að góðum gallabuxum. Damas mælir með að allir taki með sér að minnsta kosti einar góðar gallabuxur sem eru með beinu sniði og í hinum klassíska fagurbláa gallabuxnalit. 

Klassískar gallabuxur klikka aldrei!
Klassískar gallabuxur klikka aldrei! Skjáskot/Instagram

3. Þægilegir en fínir skór

Franskar konur eru þekktar fyrir að þurfa aldrei að skipta um skó – þær velja klassíska og þægilega skó sem eru samt fínir og þær geta enst í allan daginn. 

Það er lykilatriði að skórnir séu þægilegir en líka að …
Það er lykilatriði að skórnir séu þægilegir en líka að þeir séu fínir. Skjáskot/Instagram

4. Tímalaus frakki

Trench-frakkinn er tímalaus flík sem virðist aldrei fara úr tísku. Klassískur trench-frakki klikkar aldrei og passar við flest dress, en þar að auki er hann hentugur fyrir ýmis veðurskilyrði sem er alltaf plús.

Damas mælir með því að velja frakka í hlutlausum tónum …
Damas mælir með því að velja frakka í hlutlausum tónum með fallegum smáatriðum. Skjáskot/Instagram

5. Hin fullkomna taska

Það getur verið snúið að finna hina fullkomnu tösku fyrir ferðalagið. Damas hefur þó komist að því að klassíska axlartaskan sé best – hún er nógu stór fyrir það allra nauðsynlegasta án þess að vera of fyrirferðamikil. 

Damas bendir líka á hve þægilegt það er að geta …
Damas bendir líka á hve þægilegt það er að geta hent töskunni á öxlina og látið hana hvíla þar yfir daginn. Skjáskot/Instagram

6. Fylgihlutur sem grípur augað

Damas mælir með því að velja einn fylgihlut sem vekur athygli og tekur dressið upp á næsta stig. Til dæmis litríkur trefill, falleg silkislæða, glitrandi eyrnalokkar eða klassískt úr.

Það er hægt að nota fallegar silkislæður á hinn ýmsa …
Það er hægt að nota fallegar silkislæður á hinn ýmsa máta. Skjáskot/Instagram

7. Navy-blá peysa

Klassískar prjónapeysur eru ómissandi í ferðatöskuna. Navy-blái liturinn passar fullkomlega inn í franska tískuheiminn og passar við nánast allt!

Navy-blái liturinn er vinsæll í Frakklandi.
Navy-blái liturinn er vinsæll í Frakklandi. Skjáskot/Instagram

8. Kjóll sem þú dressar upp og niður

Að lokum er nauðsynlegt að pakka fallegum kjól sem hentar bæði að degi til og fram á kvöld. Það þarf að vera auðvelt að dressa kjólinn upp og niður, til dæmis með því að skipta úr flottum strigaskóm yfir í fallega hælaskó um kvöldið. 

Kjólar með fallegu blómamynstri hitta alltaf í mark.
Kjólar með fallegu blómamynstri hitta alltaf í mark. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert