The Sun en Beckhamhjónin eru nú í skíðafríi í Sviss. ">

Victoria Beckham: Við munum standa þetta af okkur

Victoria Beckham.
Victoria Beckham. AP

Victoria Beckham, eiginkona knattspyrnustjörnunnar Davids Beckhams, segir að hjónaband þeirra muni standa af sér fjölmiðlafár vegna fullyrðinga um að David hafi átt í ástarsambandi við fyrrum aðstoðarkonu sína í Madríd á síðasta ári. „Við höfum gengið í gegnum verra en þetta, og við munum standa þetta af okkur," segir Victoria í samtali við blaðið The Sun en Beckhamhjónin eru nú í skíðafríi í Sviss.

Bresk blöð fara hamförum vegna fullyrðinga, sem birtust fyrst í blaðinu News of the World á sunnudag um að Beckham hafi átt í ástarsambandi við Rebeccu Loos, fyrrum aðstoðarkonu sína. Fullyrt var í dag að Loos hefði selt blöðum upplýsingar um málið, þar á meðal berorð SMS-skeyti sem sögð eru hafa farið á milli hennar og Davids.

Rebecca Loos er 26 ára gömul dóttir hollensks sendifulltrúa. Hún starfar hjá fyrirtæki sem sá um mál Beckhams þegar hann flutti frá Englandi til Spánar á síðasta ári.

Beckham er þekktasti knattspyrnumaður heims um þessar mundir og sá tekjuhæsti. Hann er þjóðhetja á Englandi og fékk m.a. OBE orðuna í nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg