Rebecca Loos ekki velkomin í Harrods

Rebecca Loos
Rebecca Loos AP

Rebecca Loos, sem segist hafa átt í ástarsambandi við knattspyrnumanninn David Beckham, fékk ekki inngöngu í gærkvöldi í samkvæmi sem Mohammed al Fayed, eigandi stórverslunarinnar Harrods, hélt. Loos hefur skyndilega orðið gildandi í samkvæmislífi Lundúnaborgar eftir að hún birtist á síðum blaða og í sjónvarpsviðtölum. Henni var því boðið í samkvæmi Harrods en þegar al Fayed frétti það lét hann starfsmenn sína koma þeim boðum til Loos að hún væri ekki velkomin.

Talsmaður Al Fayeds segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin vegna þess að Al Fayed sé vinur Davids og Victoriu Beckham og þau versli mikið í Harrods.

„Mohammed á auðvitað verslunina og getur því gert það sem hann lystir. Það vill svo til að ég vann þar fyrir mörgum árum og var velkomin en tímarnir breytast," sagði Loos.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir