Beckham fjarri góðu gamni í þrítugsafmæli Victoriu

David Beckham og Victoria kona hans. Beckham er sagður hafa …
David Beckham og Victoria kona hans. Beckham er sagður hafa fjárfest í rándýrum demantshring til að gleðja konu sína í tilefni af þrítugsafmæli hennar. AP

Poppstjarnan Victoria Beckham, eiginkona knattspyrnuhetjunnar David Beckhms, fagnar 30 ára afmæli sínu í dag, en eiginmaðurinn er fjarri góðu gamni á Spáni. Victoria ætlar að halda litla veislu fyrir fjölskyldu sína á heimili Beckham-hjónanna „Beckingham-höllinni“ svonefndu, sem er í Hertfordskíri, að því er fram kemur í fréttamiðlinum Ananova. „Victoria mun eyða afmælisdeginum heima hjá sér með fjölskyldu sinni,“ sagði talskona söngkonunnar.

Beckham mun ekki taka þátt í gleðinni, enda á hann að spila með liði sínu, Real Madrid, gegn Atletico erkifjendum þess, í kvöld.

„Það er synd að þau geta ekki verið saman í dag, en þau fögnuðu afmæli Victoriu um síðustu helgi því þau vissu að þau yrðu aðskilin í dag,“ sagði talskona Victoriu.

Hjónin munu hittast á ný á morgun, en þá mun Victoria fá veglega afmælisgjöf frá manni sínum, sem að sögn eyddi 1 milljón punda, eða 133 milljónum íslenskra króna, í bleikan demantshring handa eiginkonu sinni.

Victoria hefur verið í páskaleyfi að undanförnu með sonum sínum Brooklyn og Romeo, meðan David hefur verið við æfingar.

Óvíst er talið að söngkonan muni skemmta sér vel á afmælisdaginn, en mikið hefur reynt á hana undanfarnar tvær vikur, vegna umfjöllunar um meint ástarævintýri Beckhams. Hann er sagður hafa haldið framhjá Victoriu með fyrrum aðstoðarkonu sinni hjá Real Madrid, Rebeccu Loos og þá segist sýningarstúlkan Sarah Marbeck einnig hafa sofið hjá Beckham.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg