Beyoncé birti mynd frá brúðkaupsdegi móður sinnar

Beyoncé birti þessa mynd af móður sinni og eiginmanni hennar …
Beyoncé birti þessa mynd af móður sinni og eiginmanni hennar á heimasíðu sinni, Beyoncé.com. Ljósmynd/ Cliff Watts

Tina Knowles, móðir söngkonunnar Beyoncé, gekk í það heilaga um helgina. Athöfnin fór fram á snekkju og brúðkaupsgestum var gert að klæðast hvítu. Sjálf klæddist Tina hvítum síðkjól frá Romona Keveza og brúðguminn, Richars Lawson, klæddist hvítum jakkafötum. Í gær birti Beyoncé svo ljósmynd af brúðhjónunum sem tekin var á stóra deginum.

Ljósmyndin, sem tekin var af ljósmyndaranum Cliff Watts, birtist á heimasíðu Beyoncé. Á myndinni má sjá brúðhjónin stilla sér upp með kampavín í hönd.

Beyoncé hefur enn ekki birt myndir af gestum veislunnar en fregnir herma að veislan hafi verið fámenn.

Þetta er í annað sinn sem Tina Knowles gengur í það heilaga en áður var hún gift föður Beyoncé, Mathew Knowles. Þau skildu árið 2011 eftir 30 ára hjónaband.

Móðir Beyoncé gifti sig um helg­ina

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson