Ben Affleck og Jennifer Garner skilja

Jennifer Garner og Ben Affleck. Mynd úr safni.
Jennifer Garner og Ben Affleck. Mynd úr safni. AFP

Hollywoodhjónin Ben Affleck og Jennifer Garner hafa sótt um skilnað eftir tíu ára hjónaband. Orðrómur hafði lengi verið á kreiki um að skilnaður þeirra væri yfirvofandi.

„Eftir miklar vangaveltur og umþóttun höfum við tekið þá ákvörðun að skilja,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim. Þau eiga saman þrjú börn.

Affleck og Garner, sem eru 42 og 43 ára, hófu samband sitt þegar þau hittust við gerð myndarinnar Daredevil árið 2003. Þaun gengu í hjónaband tveimur árum síðar og eiga saman börnin Violet, Seraphina og Samuel, sem eru níu, sex og þriggja ára.

Þau ætla ekki að tjá sig frekar um skilnaðinn á opinberum vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson