Baywatch stjarna kærð fyrir líkamsárás

Jeremy Jackson á móti David Hasselhoff í þáttunum um strandverðina …
Jeremy Jackson á móti David Hasselhoff í þáttunum um strandverðina knáu. Skjáskot af Daily Mail

Barnastjarnan Jeremy Jackson, sem gerði garðinn frægan sem Hobie Buchannon í þáttunum goðsagnakenndu Baywatch, var á dögunum kærður fyrir grófa líkamsárás.

Daily Mail greindi frá því að Jackson hafi verið handtekinn í apríl fyrir að stinga mann níu sinnum með eggvopni. Leikarinn var aldrei kærður fyrir árásina.

Nú hefur hinsvegar borist kæra honum á hendur fyrir aðra hnífsstungu sem átti sér stað í ágúst. Að sögn réðst Jackson á konu með hnífi þegar hún reyndi að koma í veg fyrir að hann stæli bíl kærasta hennar.

Jackson flúði af vettvangi, en lögreglan hafði hendur í hári hans stuttu síðar. Hann á yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur.

Fyrr á þessu ári var leikarinn einnig sakaður um að hafa reynt að myrða fyrrverandi eiginkonu sína, Loni Willison, en hún dró kæru sína til baka.

Jackson lýsti því yfir í viðtali að hann hafi lengi átt í miklum erfiðleikum með fíkniefni, en 2011 fór hann meðal annars í meðferð vegna sterafíknar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson