Kim Kardashian fékk áfall þegar hún sá myndir af sér með appelsínuhúð í Mexíkó í apríl og ákvað að taka sig í gegn samkvæmt DailyMail.
Nú er Kardashian búin að vera á ströngu mataræði og æfir stíft alla morgna síðan hún sneri aftur til Los Angeles fyrir tveimur mánuðum.
Á laugardagsmorguninn sást til raunveruleikastjörnunnar hlaupa upp og niður stiga Dodger-vallarins og er hún sögð líta mun betur út og miklar framfarir eru sjáanlegar.
Í viðtali við The View fyrir helgi sagðist Kardashian hafa tekið það mjög inn á sig þegar hún sá myndirnar frá Mexíkó og sagði einnig að fólk hefði breytt myndunum til að láta hana líta verr út. Hún bætti við að á þessum tíma hefði hún ekki æft í 12 vikur því hún hefði verið nýbúin að fara í tvær aðgerðir á leginu.
Kardashian æfir klukkan 05:30 alla morgna, áður en börnin vakna, í einn og hálfan tíma í senn með einkaþjálfara. Hún er einnig með næringarfræðing sem segir henni hvað hún eigi að borða.
Raunveruleikastjarnan segist hafa tekið miklum framförum og líður vel því hún elskar að hreyfa sig.