Semja um greiðslur þótt skipulag hafi ekki verið samþykkt

Hólmsá í Skaftártungum.
Hólmsá í Skaftártungum. mbl.is/Gísli

Landsvirkjun og RARIK hafa samið við eigendur tveggja þriðju hluta vatnsréttinda í Hólmsá í Skaftártungu vegna virkjunaráforma, þrátt fyrir að ekki hafi verið gengið frá nauðsynlegum breytingum á aðalskipulagi.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að áætla megi að leiguverðið sé í heild um 300 milljónir króna.

Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir að samkeppni ríki á orkumarkaðnum og að Landsvirkjun þurfi því að tryggja réttindi sín fyrr í ferlinu en áður var. Tillaga að breytingum á skipulaginu er nú til umfjöllunar í sveitarstjórn Skaftárhrepps.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert