Um 25% miðanna voru til sölu

Um fjórðungur af þeim 3100 miðum sem voru í boði á opnunartónleikana í Hörpu, eða um 800, var boðinn  til sölu. Áskrifendur að sinfóníutónleikunum, 1880 manns, fengu miða og um 400 í viðbót fengu boðsmiða. Margir gátu ekki keypt miða á netinu því sölukerfið hrundi.

Margrét Ragnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, segir að þar sem sviðið sé stækkað, allir kórpallar nýttir og pláss búið til fyrir myndavélar og fleira komist um 1550 manns í salinn. Salurinn getur í mesta lagi tekið 1800 manns í sæti.

Ráðamönnum boðið á tónleika

Eins og fyrr segir fengu áskrifendur 1880 miða og 400 til viðbótar er boðið.

Margrét segir að þeir sem fái boðsmiða séu t.d. innlendir og erlendir blaðamenn, Harpa fái einhverja boðsmiða, allir listamenn sem komi fram fái boðsmiða og makar hljómsveitarmeðlima fái boðsmiða 5. maí. Fyrir utan þennan lista sé um 100 manna boðslisti. Þegar mbl.is ræddi við hana fyrir stundu var hún ekki með boðslistann undir höndum en á honum séu t.d. forseti Íslands, menntamálaráðherra, borgarstjóri og fleiri.

Margrét bendir á að miðarnir sem boðnir hafi verið til sölu séu jafnmargir og séu jafnan í boði á tónleika í Háskólabíói. „Við höfum ekki lent í því áður að það seljist upp á tónleika á tveimur klukkutímum. Þannig að þótt við setjum um 800 miða í sölu þá eigum við ekki von á að þeir rjúki út á tveimur tímum,“ segir hún. Þá séu miðar á aðra viðburði, s.s. á tónleika Jonas Kaufman og Sinfóníuhljómsveitarinnar einnig að seljast upp. 

Glæsilegir tónleikar en fleiri framundan

Á opnunartónleikunum verður flutt nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Víkingur Heiðar mun leika píanókonsert eftir Edward Grieg sem er einn dáðasti píanókonsert allra tíma. Tónleikunum lýkur svo á 9. sinfóníu Beethovens undir stjórn Vladimir Ashkenazy sem er einn fremsti Beethoven-túlkandi í heimi. Einvalalið söngvara og kóra tekur þátt í tónleikunum.

Aðspurð segir Margrét að verið sé að kanna hvort tónleikarnir verði endurteknir en það sé þó ólíklegt.  Hún minnir á að glæsilegir og tilkomumiklir tónleikar séu framundan, m.a. Mahler-veisla 28. maí.

Ómögulegt að kaupa miða

Miðasölukerfið kiknaði undir miklu álagi í dag og komust margir sem ætluðu sér að reyna að ná í þessa 800 miða sem voru í boði, ekki inn á síðuna. Maður sem mbl.is ræddi við sagðist hafa byrjað að reyna að kaupa miða um kl. 12:15 en þá hafi kerfið ekki virkað. Hann hafi haldið áfram að reyna og jafnframt hringt reglulega í miðasöluna en án árangurs; hvorki virkaði kerfið né var svarað í miðasölusímann. Fram hefur komið að um 3000 manns reyndu að kaupa miða í húsið milli klukkan 12 og 13 í dag. 

Margrét segir að farið verði yfir málið þannig að tryggt verði að slíkt endurtaki sig ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert