Brugðist verður við eineltisumræðu í Hveragerði

Frá Hveragerði.
Frá Hveragerði. Rax / Ragnar Axelsson

Hveragerðisbær og forsvarsmenn Grunnskólans í Hveragerði segja að umræðan um einelti í bænum sé afar þörf og vonandi nái hún að vekja sem flesta til meðvitundar um þá meinsemd sem einelti sé. Í kjölfar umræðu undanfarinna daga muni allir sem að málefnum barna koma leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að  börnum í Hveragerði megi líða sem best,  í og utan skóla.

Einelti í grunnskólum sem annars staðar er smánarblettur og öll umræða sem orðið getur til að koma í veg fyrir slíkt er af hinu góða," segir í tilkynningu frá Guðjóni Sigurðssyni skólastjóra Grunnskólans í Hveragerði og Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra. „Það þarf kjark til að standa með barninu sínu í erfiðum aðstæðum og slíkt er hlutverk foreldra og forráðamanna þeirra sem yngstir eru.

„Einelti er ofbeldi sem hvergi á að líðast. Þess vegna var Grunnskólinn í Hveragerði með fyrstu skólum á landinu (2004) til að taka upp Olweusar áætlunina gegn einelti. Allt skólasamfélagið tekur þátt í þeirri áætlun, starfsfólk skólans, nemendur og foreldrar. Reynslan hefur sýnt okkur að þegar allir vinna saman tekst okkur yfirleitt að uppræta einelti. Það getur tekið tíma en það má aldrei gefast upp."

Í Grunnskólanum í Hveragerði sé unnið gegn einelti á eftirfarandi hátt:

  • Unnið er eftir Olweusaráætlun
  • ART-þjálfun, bekkjarART og boðið upp á meðferðarART.
    (ART = Þjálfun í félagsfærni, sjálfstjórn og félagsvænum viðhorfum).
  • Vinabekkir - vinahópar
  • Þjónusta námsráðgjafa
  • Í erfiðustu tilfellunum er málum vísað til nemendaverndarráðs. Í því sitja, deildarstjóri sérkennslu, staðgengill skólastjóra, námsráðgjafi, félagsmálastjóri, skólasálfræðingur og fulltrúi heilsugæslu. Hlutverk þess er meðal annars að finna viðunandi lausn á eineltismálum.

Samkvæmt niðurstöðum úr könnunum þar á meðal úr Skólapúlsi mælist einelti í Grunnskólanum í Hveragerði  minna en almennt gerist í skólum landsins. Engu að síður segja Guðjón og Aldís að hvert tilfelli eineltis sé einu tilfelli of mikið. 

„Því þurfa allir að vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til vanlíðunar barna. Í kjölfar umræðu undanfarinna daga munu allir sem að málefnum barna koma leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að  börnum í Hveragerði megi líða sem best, í og utan skóla." 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert