Telja lík Bandaríkjamannsins fundið

Nathan Foley Mendelssohn lagði einn af stað í gönguferð þann …
Nathan Foley Mendelssohn lagði einn af stað í gönguferð þann 10. september í fyrra.

Lík fannst við Háöldu við Landmannalaugar í gær. Talið er að það sé af Nathan Foley Mendelssohn, 34 ára Bandaríkjamanni sem hvarf 10. september í fyrra.

Málið hefur nú verið sent til kennslanefndar ríkislögreglustjóra til frekari rannsóknar.

Nathan ætlaði að ganga Laugaveginn og Fimmvörðuháls, frá Landmannalaugum að Skógum undir Eyjafjöllum, daginn sem hann hvarf.

Vonskuveður var á Laugaveginum þennan dag og höfðu björgunarsveitir á litlu að byggja við leitina. Þann 29. september fundust tjald og dýna á Laugaveginum sem talið er að hafi tilheyrt Mendelssohn.

Um tíma leituðu 150 björgunarsveitarmenn og þyrlusveitir að Mendelssohn en þann 7. október var leitinni formlega hætt.

Fyrri fréttir mbl.is af málinu:

Áfram leitað að ferðamanninum

Ferðamaðurinn talinn af

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert