Örfá sæti laus

Flugfélagið Ernir. Mynd fengin af vef félagsins.
Flugfélagið Ernir. Mynd fengin af vef félagsins.

Flugfélagið Ernir hefur sett upp loftbrú milli lands og Eyja alla verslunarmannahelgina. Flogið er allt að 16 flug á dag og má áætla að um 500 manns verði fluttir til Eyja og um 300 manns frá Eyjum á mánudeginum.

Fullbókað er í flest flugin en þó eru örfá sæti laus ennþá, segir í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Erni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert