Barn féll af stól og rotaðist

mbl.is/Hjörtur

Barn féll af stól í leikskóla í Hafnarfirði morgun með þeim afleiðingum að það rotaðist. Málið var tilkynnt til lögreglu sem fór á vettvang með forgangi ásamt sjúkraliði. Barnið var með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að barnið hafi verið flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari skoðunar og eftirfylgni. Ekki er talið að um alvarlega áverka sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert