Neitar að hafa ekið á konuna

Hæstiréttur.
Hæstiréttur. mbl.is/Sverrir

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem ók tvívegis á fyrrverandi sambýliskonu sína á laugardagsmorgun. Maðurinn neitar sök en viðurkennir að hafa verið á vettvangi umrætt sinn.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan vinni nú að rannsókn alvarlegrar líkamsárásar sem tilkynnt hafi verið um klukkan 7.30 á laugardagsmorgun.

Þegar lögregla kom á vettvang hitti hún fyrir konuna og dóttur hennar. Konan hafi verið meidd á fæti og hrufluð á hendi. Hún hafi skýrt frá því að maðurinn, fyrrverandi sambýlismaður hennar, hefði kastað skiptilykli í gegnum rúðu á svefnherbergi hennar og í kjölfarið hafi hún farið út. Hafi þá maðurinn ekið á hana á bifreið sinni. Hafi hann svo aftur reynt að aka á hana eftir að hún hafið náð að koma sér undan. Hann hafi því næst ekið burt á miklum hraða.

Dóttir konunnar sem var á vettvangi lýsti árásinni með sama hætti. Konan kvaðst vera mjög hrædd við manninn og sannfærð um að hann hafi ætlað að drepa sig.

Þá var rætt við vitni á vettvangi sem lýstu manninum og hefði lýsing á honum komið heim og saman við sambýlismanninn fyrrverandi.

Maðurinn verður í haldi til 14. september næstkomandi. Hann viðurkenndi við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa kastað skiptilyklinum en neitar að hafa ekið á konuna.

Frétt mbl.is: Ökumaður í annarlegu ástandi olli slysi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert