Grunur um brot gegn þroskaskertri konu

Héraðsdómur Norðurlands Eystra.
Héraðsdómur Norðurlands Eystra. mbl.is/Skapti

Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. nóvember næstkomandi. Sterk­ur grun­ur er uppi um að maður­inn hafi með hót­un fengið dreng­ina inn í íbúð sína þar sem hann hafi haft þá á sínu valdi um stund.

Þetta kemur fram í Akureyri vikublaði. Þar segir einnig að aðalmeðferð í málinu fari fram í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er maðurinn einnig grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertri konu fyrr á þessu ári. Bæði brotin áttu sér stað á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert