Aðföng innkalla kókosolíu

Aðföng hafa ákveðið með hliðsjón af neytendavernd að taka úr sölu og innkalla kókosolíu í 200 gramma krukkum sem seld hefur er undir vörumerkinu Himneskt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu en ástæða innköllunarinnar er að í einni krukku fannst aðskotahlutur.

Fram kemur að innköllunin nái eingöngu umræddar vörur sem merktar eru best fyrir 31-07-2016 sem áletrað sé á lok krukkunnar. Varan var til sölu í verslunum Bónus, Hagkaupa, Stórkaupa, matvöruverslunum KS, 10-11 og Gló Fákafeni.

Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: HIMNESKT Lífræn kókosolía
Strikamerki: 5690350059947
Nettóþyngd: 200g
Best fyrir dagsetningar: 31-07-2016

„Viðskiptavinum verslananna sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðföng biðja viðskiptavini verslananna sem kunna að verða fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert